|
Velkomin á vef Bjarkarinnar.
Björkin er miðstöð fyrir verðandi foreldra og foreldra nýfæddra barna. Ljósmæður Bjarkarinnar taka að sér heimafæðingar, heimaþjónustu í sængurlegu og bjóða upp á námskeið fyrir verðandi foreldra.
Mikilvægt er að konur finni til öryggis á meðgöngu, í fæðingu og í sængurlegu og hafi stuðning ljósmóður í öllu þessu ferli. Samfelld þjónusta ljósmóður stuðlar að aukinni öryggistilfinningu og jákvæðri útkomu fyrir konur og fjölskyldur þeirra. Mikilvægt er að konur geti valið þá þjónustu sem hentar þeim og fjölskyldum þeirra best. Konur vilja í auknum mæli fá samfellda þjónustu ljósmóður sé þess kostur. Markmið Bjarkarinnar er að koma til móts við þessar þarfir með því að veita samfellda þjónustu þeim konum sem stefna á heimafæðingu og bjóða upp á námskeið þar sem áhersla er lögð á undirbúning fyrir eðlilega fæðingu og brjóstagjöf. Björkin býður einnig upp á námskeið fyrir nýbakaða foreldra sem hjálpa foreldrum að takast á við þau verkefni sem fylgja foreldrahlutverkinu.
|
|